Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýr vefur Hofsstaðaskóla

15.05.2008
Nýr vefur Hofsstaðaskóla

Í dag fimmtudaginn 15. maí voru opnaðir fimm nýir vefir hjá Garðabæ. Vefirnir sem voru  opnaðir í dag eru nýr vefur Garðabæjar, www.gardabaer.is og nýir vefir fyrir alla grunnskóla Garðabæjar, www.flataskoli.is, www.hofsstadaskoli.is, www.gardaskoli.is og www.sjalandsskoli.is.

ATHS:
Vekjum athygli á að það gæti þurft að uppfæra Flash spilara á tölvum svo síðurnar virki rétt, m.a. myndir á forsíðu.
Flash spilarann má nálgast hér: http://www.adobe.com/products/  (Get ADOBE FLASH PLAYER - til hægri á síðunni)

 

Helsta nýjungin sem felst í nýju vefjunum er að þeir fá allir áþekkt útlit og veftré allra skólavefjanna verða eins. Næsti áfangi er vinna við nýja vefi fyrir leikskóla Garðabæjar sem munu falla inn í sama ramma. Fyrir foreldra þýðir þetta að þeir þurfa aðeins að læra einu sinni á uppbyggingu vefja Garðabæjar, þótt þeir eigi e.t.v. eitt barn í leikskóla, eitt í Flata-, Hofsstaða- eða Sjálandsskóla og eitt í Garðaskóla og þurfi að afla sér upplýsinga frá öðrum stofnunum bæjarins. Markmiðið með samræmingu vefjanna er þannig að gera Garðbæingum og öðrum auðveldara að nálgast upplýsingar frá bæjarfélaginu.

 

Það er von okkar hér í Hofsstaðaskóla að nýi vefurinn eigi eftir að vaxa og dafna líkt og börnin í skólanum.
Enn er hægt að ná í gamla Hofsstaðaskólavefinn af krækju á forsíðu þess nýja (slóðin á gamla vefinn er http://gamli.hofsstadaskoli.is ). En gamli vefurinn verður tiltækur út skólaárið á meðan verið er að setja meiri upplýsingar inn á nýja vefinn.

Allar ábendingar varðandi nýja vefinn eru vel þegnar.

Til baka
English
Hafðu samband