Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Völlurinn vígður

11.09.2008

Nýi battavöllurinn við skólann verður formlega vígður föstudaginn 12. september kl. 13:20, en þá munu formenn skólanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs klippa á borða og skjóta fyrsta skotinu. Að því loknu keppa nemendur og starfsmenn í fótbolta.

Nemendur hafa beðið vallarins með eftirvæntingu. Völlurinn er mjög stór eða 20 x 40 metrar og er því hægt að spila annaðhvort á tveimur minni völlum í einu eða einum stórum. Völlurinn er í alla staði mjög vandaður.

Áfram Hofsstaðskóli

Til baka
English
Hafðu samband