Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Margt til lista lagt

10.10.2008
Margt til lista lagt

Honum Jóhanni í 7. B.V. er margt til lista lagt. Okkur vantaði gardínur í eitt af hofunum okkar þar sem tónlistarkennararnir kenna nemendum á hljóðfæri og við kennum á Ritþjálfa. Jóhann tók mjög vel í beiðni okkar og gerði þennan flotta kappa sem nú prýðir stofuna.

Jóhann byrjaði á því að fara út í hof og mæla gluggann. Síðan valdi hann efni og klippti eftir máli. Þess má geta að Jóhann er einn helsti aðstoðarmaður Esterar textílkennara þegar kemur að því að þræða saumavélar og spóla á undirtvinnan. Það var því lítið mál fyrir hann að græja það áður en kom að því að falda og sauma. Að lokum fullkomnaði Jóhann verkið með því að strauja kappann og hengja upp með aðstoð Sigurgeirs starfsmanns skólans.

Til baka
English
Hafðu samband