Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Umhverfisstarf

06.11.2008
UmhverfisstarfUmhverfisgæslan fór í eftirlitsferð um skólann í vikunni og tók út ýmsa þætti sem tengjast umhverfisstefnunni okkar. Umhverfisgæslan veitti fjórtán bekkjum af sautján grænan miða fyrir góðan árangur í umhverfisstarfinu. Einnig má geta þess að mjög lítið var um fernur í bekkjunum en þar sem þær falla til er þeim safnað saman. Nemendur Hofsstaðaskóla eru greinilega duglegir að drekka vatn úr krananum eða koma með drykki í fjölnota umbúðum. Þetta erum við ánægð með enda er Hofsstaðaskóli Grænfánaskóli.
Til baka
English
Hafðu samband