Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Góðir gestir

20.11.2008
Góðir gestir

Starfsfólk úr Varmalandsskóla í Borgarfirði kom í heimsókn til okkar mánudaginn 10. nóvember. Þau komu til að kynna sér skólastarfið hjá okkur. Hópurinn byrjaði í tölvustofunni þar sem Margrét Harðardóttir, skólastjóri fór yfir stefnu skólans og skipulag, Margrét Einarsdóttir, deildarstjóri sérkennslu fór yfir sérkennsluna og Elísabet Benónýsdóttir, kennsluráðgjafi í UT yfir tölvu-og upplýsingatækni í skólanum. Eftir kynninguna var haldið í smá sýnikennslu hjá 4. R.S. en þau sýndu okkur dæmi um hvernig þau eru að nota gagnvirku Smartboard töfluna sína í náminu. Arnheiður Ösp deildarstjóri yngri deildar leiddi síðan gestina um skólann og sýndi þeim aðstæður og fræddi þau um starfið.

Við þökkum starfsfólki Varmalandsskóla kærlega fyrir komuna.

Til baka
English
Hafðu samband