Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Styrkur frá IKEA

05.12.2008
Styrkur frá IKEASjóður IKEA veitti Hofsstaðaskóla styrk  vegna verkefnisins Lampahönnunarkeppni að upphæð kr. 97.500,- og til lokaverkefnis nemenda í 7. bekk að upphæð kr. 81.648,- nú í nóvember, en umsækjandi var Sædís Arndal smíðakennari.
Í Hofsstaðaskóla er mikil áhersla lögð á nýsköpun, hönnun og listir og því er þessi styrkur kærkominn til þess að nemendur geti tekist á við metnaðarfull og skapandi verkefni.
Skólinn þakkar IKEA stuðninginn og hver veit nema hér leynist framtíðarhönnuður fyrir IKEA.
Til baka
English
Hafðu samband