Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jólaskemmtanir

19.12.2008
Jólaskemmtanir

Föstudaginn 19. desember mættu nemendur og starfsfólk skólans prúðbúið í skólann á jólaskemmtanir sem ávallt eru haldnar síðasta skóladag fyrir jólaleyfi.

Haldnar voru tvær jólaskemmtanir, ein fyrir yngri deild og önnur fyrir eldri. Nemendur mættu fyrst í sínar kennslustofur þar sem þeir hlýddu á jólasögu og spjölluðu við umsjónarkennara sinn. Síðan var haldið í samkomusal. Nemendur í 4. bekk sáu um skemmtiatriðin hjá yngri deild en dagskráin hófst að venju á helgileiknum. Hjá eldri deild var helgileikurinn sýndu aftur en svo tóku nemendur úr 7. bekk við með bráðskemmtilegt jólaleikrit.

Að lokum var dansað í kringum jólatréð við fagran undirleik tónmenntakennara og nokkurra nemenda.

Myndir frá skemmtununum eru komnar á netið. Kíkið endilega á þær hér

 

Til baka
English
Hafðu samband