Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frábært framtak

20.05.2009
Frábært framtak

Í morgun komu Kiwanismenn í skólann og færðu öllum nemendum í 1. bekk reiðhjólahjálm að gjöf. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnarhússins. Það var mikil ánægja hjá krökkunum að fá Gunnar Einarsson bæjarstjóra í heimsókn en hann aðstoðaði Kiwanismenn við afhendingu hjálmanna. Rætt var við krakkana um mikilvægi þess að nota alltaf hjálma við hjólreiðar og gæta fyllsta öryggis í umferðinni. Frábært framtak. Alls verða 4200 reiðhjólahjálmar gefnir í ár og munu Kiwanisklúbbar og Eimskip vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna.

Skoðið myndir frá afhendingu reiðhjólahjálmanna í Hofsstaðaskóla.

Til baka
English
Hafðu samband