Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrekkjavaka

04.11.2009
Hrekkjavaka

Halloween hátíð 7. bekkja Hofsstaðaskóla var haldin fimmtudagskvöldið 29. október s.l.  Hátíðin tókst í alla staði frábærlega vel og skemmtu allir sér konunglega.  Nokkrir krakkar í 7. bekk sáu um  dansfjörið og krakkarnir sáu sjálfir, með hjálp foreldra, um að gera veisluborðið sem girnilegast. 
Hugmyndin að þessari hátíð er fengin úr enskukennslu skólans en þar eru kynntar helstu hátíðir í enskumælandi löndum.  Krakkarnir sáu sjálfir um að útbúa skreytingar og var salurinn, alrýmið og inngangurinn skreyttur með allskyns ófreskjum og draugalegum myndum.
Ákveðið var að bjóða 7. bekkjum Flataskóla og Sjálandsskóla í teitið og hrista þannig saman hópinn sem hittist í Garðaskóla næsta vetur.  Hópurinn náði mjög vel saman og dönsuðu og trölluðu þannig að ómögulegt hefði verið fyrir ókunnugan að sjá hver var úr hvaða skóla.

Kíkið endilega á myndir á myndasíðu 7. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband