Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bekkjarmyndataka 12. nóvember

10.11.2009

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Fimmtudaginn 12. nóvember nk. fer fram bekkjamyndataka hjá árgöngum 1., 3., 5., 7.  Í ár er Barna og fjölskyldu Ljósmyndirehf. sem kemur til með að annast myndatökur. Foreldrafélagið leitaðist eftir að fá tilboð í þetta verkefni þar sem vinnubrögð, gæði og sanngjarnt verð voru höfð að leiðarljósi.

Myndatökur fara fram með hefðbundnu sniði og allir krakkar eru myndaðir óháð hvort þeir síðan panta mynd eða ekki. Teknar verða bæði bekkja- og einstaklingsmyndir af öllum.

Eftir að vinnslu er lokið, sem yfirleitt tekur um tvær vikur, eru myndirnar sýndar og hverjum og einum er frjálst að taka ákvörðun um fjölda mynda.

Til baka
English
Hafðu samband