Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gegn einelti í Garðabæ

30.11.2009
Gegn einelti í Garðabæ

,,Gegn einelti í Garðabæ" er aðgerðaáætlun grunnskóla Garðabæjar sem hófst haustið 2003.  Markmið hennar er að fyrirbyggja og bregðast við einelti ásamt því að bæta líðan og öryggi nemenda. Verkefnið grundvallast á markmiðum í skólastefnu Garðabæjar.

Megin áherslur aðgerðaráætlunarinnar eru að:
• Efla vitund og færni allra starfsmanna, forráðamanna og nemenda til að vinna að forvörnum og bregðast við einelti.
• Móta skýr viðbrögð og feril við meðferð eineltismála.
• Koma á markvissu forvarnastarfi í öllum árgöngum.
• Auka fræðslu, upplýsingar og samstarf við forráðamenn.
• Kanna umfang og eðli eineltismála hjá nemendum í grunnskólum Garðabæjar.

Til að kanna umfang og eðli eineltismála hjá nemendum í Flataskóla, Garðaskóla, Hofsstaðaskóla  og Sjálandsskóla verður rafrænn spurningalisti lagður fyrir nemendur í 4. – 10. bekk í nóvember/desember 2009. Nemendur svara könnuninni á skólatíma. Spurt verður um líðan nemenda, reynslu þeirra af einelti og viðbrögð ef þeir sjálfir og/eða aðrir eru lagðir í einelti.
Eineltisteymi skólanna vinnur úr  könnuninni og verða niðurstöður kynntar á heimasíðu hvers skóla fyrir sig.

Skólastjórnendur

Til baka
English
Hafðu samband