Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ferðin á Reyki gekk vel

18.01.2010

Það var kátur hópur nemenda í 7. bekk ásamt kennurum sem hélt af stað frá skólanum upp úr kl. 8:30 í morgun mánudaginn 18. janúar. Ferðinni var heitið í Skólabúðirnar Reykjum í Hrútafirði. Þar verður dvalið við leik og störf fram á föstudag.

Ferðin gekk vel í Hrútafjörðinn og byrjaði hópurinn á að koma sér fyrir og kanna aðstæður. Kennarar vildu koma á framfæri kveðjum. Endilega fylgist með hvað drífur á daga krakkanna á vef hópsins sem nálgast má hérna vinstra megin á síðunni.  

Til baka
English
Hafðu samband