Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Börn hjálpa börnum

03.03.2010
Dagana 26. febrúar – 9. mars munu fjölmargir nemendur úr 4. bekk taka þátt í verkefninu Börn hjálpa börnum sem er á vegum ABC barnahjálpar.  Verkefnið felst í því að nemendur ganga í hús í nágrenni Hofsstaðaskóla og safna peningum í sérstaka ABC söfnunarbauka. Í ár er safnað fyrir The Comforter starfi í Chennai á Indlandi. The Comforter rekur heimili og skóla fyrir 230 götubörn. Meiri upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðunni http://abc.is/
Til baka
English
Hafðu samband