Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

UNICEF - verkefni

21.05.2010
UNICEF - verkefni

Nemendur í  5. – 7. bekk í Hofsstaðaskóla taka þátt í UNICEF- verkefni í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Með þátttöku sinni vill skólinn ná tveimur markmiðum, sem eru;  Fræða nemendur um þurfandi börn um allan heim í gegnum holla hreyfingu og í þökk foreldra sinna, safna fé fyrir jafnaldra sína sem búa við bág kjör og lakar aðstæður.
Umsjónakennarar ræða við nemendur um aðstæður barna, sýna myndband um aðstæður jafnaldra þeirra í fátækari löndum og ræða um að láta sig velferð annarra varða.
Nemendur safna áheitum (ekki skylda) úr sínu nánasta umhverfi vegna íþróttaverkefnis. Verkefnið verður að hlaupa, ganga, skokka, valhoppa meðfram Arnarneslæknum frá Hofsstaðaskóla og niður undir Hafnarfjarðarveg og til baka. Önnur leiðin er um  0,7 km og fá nemendur límmiða í þar til gert kver við hvorn enda og þannig er fylgst með framvindunni. Síðan er spurningin hversu marga hringi viðkomandi fer? Tveir miðar fyrir hvern hring. Hreyfinginn fer fram föstudaginn 28. maí kl. 10:50-12:30.
Með þátttöku einni saman er verið að styrkja börn um allan heim, því góður hugur, samkennd og þátttaka er mikil gjöf.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband