Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Norræna skólahlaupið 2010

15.09.2010
Norræna skólahlaupið 2010

Norræna skólahlaupið fór fram hér í skólanum miðvikudaginn 8. september. Allir nemendur skólans hlupu í tilefni þess í það minnsta einn hring sem var 2,5 km - hver og einn hljóp í samræmi við eigin getu og bættu margir við fleiri hringjum. Allir stóðu sig með mestu prýði og hlupu sem mest þeir máttu. Sá sem hljóp lengst allra í skólanum hljóp 12,5 km sem sannanlega er vel af sér vikið.

Markmiðið með hlaupinu er að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu. Auk þess að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. 
Veðrið var eins og best verður á kosið og var mikil stemning innan hópsins.

Sjá myndir á myndasíðu skólans

Til baka
English
Hafðu samband