Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lífríki Vífilsstaðavatns

30.09.2010
Lífríki Vífilsstaðavatns

Mánudaginn 27. september fóru nemendur í 6. bekkjum skólans í vettvangsferð að Vífilsstaðavatni. Það er orðinn fastur liður á hverju hausti að nemendur heimsæki Vífilsstaðavatn og fræðist um lífríkið. Í þeirri vinnu læra nemendur heilmargt um vatn og vatnagerðir, fugla og plöntur í votlendi og móum auk þess sem fjallað er um fiska og smádýr sem lifa í fersku vatni.

Ferðin hófst á því að nemendur ásamt kennurum hjóluðu að vatninu um morgunin. Þar tók Bjarni Jónsson fiskifræðingur á móti hópnum ásamt Kristrúnu deildarstjóra. Nemendum var skipt í 4 hópa og unnu þeir fjölbreytt verkefni undir dyggri leiðsögn Bjarna og kennara. Nemendur skoðuðu umhverfið og rifjuðu upp örnefni, greindu fugla og plöntur, hjálpuðu Bjarna við að ná fiskum úr neti og skoðuðu þá. Jafnframt voru tekin sýni úr læknum og vatninu til að rannsaka nánar í skólanum.
Daginn eftir var svo unnið við að greina sýnin í víðsjá með greiningarlyklum. Nemendur fengu einnig að kryfja fisk úr vatninu og lærðu í leiðinni um líffæri fiska. Vinna var afar skemmtileg og lærdómsrík að mati nemenda.

Nemendur munu greina nánar frá ferðinni í máli og myndum á vef sem þeir eru að vinna að.

Skoða myndir

Til baka
English
Hafðu samband