Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leiðsagnarmat í tengslum við nemenda og foreldradag

10.10.2010

Nemenda- og foreldradagur verður í skólanum þriðjudaginn 19. október. Opnað var fyrir leiðsagnarmatið í Mentor 6. október og eru nemendur hvattir til að ljúka því við fyrsta tækifæri. Gert er ráð fyrir að allir hafi lokið matinu 13. október. Leiðsagnarmatið byggir á þátttöku nemenda. Mjög mikilvægt er að þeir taki virkan þátt í matinu og njóti aðstoðar foreldra eða forráðamanna. Allir fengu sendar leiðbeiningar frá umsjónarkennara. Ef einhverjir eru í vandræðum eru þeir hvattir til að hafa samband við skólann.

Leiðsagnarmatið er eining í Mentor sem gefur aukna möguleika á samstarfi nemenda, foreldra og skóla við markmiðssetningu og mat á stöðu og líðan nemenda. Markmiðið með leiðsagnarmatinu er m.a. markviss og gagnkvæm upplýsingagjöf. Þannig safna kennarar meiri upplýsingum um nemendur en áður og fá að auki upplýsingar frá nemendum sjálfum um hvaða augum þeir líta eigin stöðu í skólanum. Það gefur einnig tilefni til umræðna á heimilinu um gang mála í skólanum.

Til baka
English
Hafðu samband