Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Laufabrauðsgerð kl. 11-14

01.12.2010
Laufabrauðsgerð kl. 11-14

Jólastemning verður í sal skólans laugardaginn 4. desember milli kl. 11-14 en þá fer fram hin árlega laufabrauðsgerð foreldrafélags Hofsstaðaskóla. Foreldrafélagið selur laufabrauð tilbúið til útskurðar - 8 stk. á 600 krónur. 

Jólakort tækjanefndar verða seld á staðnum vegna fjáröflunar fyrir gagnvirkum kennslutöflum - 6 stk. á 1000 krónur.

Börn koma í fylgd með fullorðnum og koma með:

  • Skurðabretti
  • hnífa / laufabrauðshjól
  • ílát undir steiktu laufabrauðin

Posi verður á staðnum.

 

 

Aðstoð er vel þegin við steikingu.

Sjáumst í jólastuði

Foreldrafélagið

Sjá auglýsingu

Til baka
English
Hafðu samband