Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Rýmingaræfing í skólanum

01.12.2010
Rýmingaræfing í skólanum

Þriðjudaginn 30. nóvember fór fram rýmingaræfing í skólanum. Unnið var samkvæmt áætlun sem endurnýjuð var sl. vor. Nemendur fóru eftir ákveðnu skipulagi með kennurum sínum á battavöllinn þar sem manntal var tekið. Æfingin gekk vel en alltaf má gera betur. Starfsmenn fóru yfir framkvæmdina á fundi að æfingu lokinni og verður áætluninni lítillega breytt og þeir þættir lagaðir sem betur máttu fara.

Rýmingaráætlunin verður birt á heimasíðu skólans að lokinni endurskoðun.
Það sást glitta á nokkur tár þrátt fyrir að rætt hafi verið við nemendur að um æfingu væri að ræða þess vegna bið ég ykkur um að ræða um æfinguna sérstaklega við yngri börnin.

Til baka
English
Hafðu samband