Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námsmat í janúar

12.01.2011

Í janúar vinna kennarar að námsmati. Við viljum hvetja bæði nemendur og foreldra til að fylgjast með atburðadagatalinu okkar hér á vefnum. En þar er getið um sérstaka prófadaga í 5. - 7. bekk, afhendingu vitnisburða og nemenda- og foreldradag.

Við minnum nemendur og foreldra á að fylgjast með umsögnum í Námsframvindunni í Mentor. Námsframvindan var tekin í notkun nú í haust og eru umsagnir í þeim greinum sem kenndar eru í list- og verkgreinalotu þ.e. smíði, myndmennt, textílmennt og heimilisfræði birtar eftir að lotu lýkur. Auk þess verður Námsframvindan einnig nýtt í eðlisvísindum þar sem kennt er í lotum, í sundi og vélritun.Vakin er athygli á því að áðurtaldar námsgreinar verða ekki á vitnisburðarblaði.

Vekjum athygli á því að umsögn er gefin á eftirfarandi hátt:

1. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu að hausti fá umsögn á þrepi 1 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 2.

2. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu að hausti fá umsögn á þrepi 3 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 4.

3. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu á hausti fá umsögn á þrepi 5 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 6.

4. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu á hausti fá umsögn á þrepi 7 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 8.

5. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu á hausti fá umsögn á þrepi 9 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 10.

6. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu á hausti fá umsögn á þrepi 11 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 12.

7. bekkur
Nemendur sem ljúka námskeiði/lotu á hausti fá umsögn á þrepi 13 en þeir sem ljúka lotu að vori á þrepi 14.


 

 

 

 

Til baka
English
Hafðu samband