Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frístundabíll hefur akstur

14.01.2011
Frístundabíll hefur akstur

Bréf sent aðstandendum nemenda

„Frístundabíll“ hefur akstur í Garðabæ næsta mánudag, 17. janúar en en hlutverk hans er að keyra börn frá tómstundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og æskulýðsstarf.

Börnin séu búin fyrr á daginn
Markmiðið með frístundabíl er að hægt verði að samþætta betur íþrótta- og tómstundastarf við skólastarfið og hafa það í einni samfellu. Jafnframt er markmiðið að nýta betur íþróttamannvirki Garðabæjar. Á þessari önn verða töflur íþrótta- og tómstundafélaga óbreyttar en ef tilraunarverkefnið gengur vel, er horft til þess að hægt verði að hefja íþrótta- og tómstundastarf fyrr á daginn næsta haust. Stefnt er að því að yngstu iðkendurnir verði búnir að stunda sitt íþrótta- og tómstundastarf þegar þeir eru sóttir í lok vinnudags.

Fer á hálftíma fresti
Akstursleiðin er ákaflega einföld og eingöngu stoppað á þessum stöðum: Hofsstaðaskóli (Mýrin) – Tónlistarskóli Garðabæjar, Ásgarður (Stjörnuvöllur), Sjálandsskóli (við íþróttahúsið) og Flataskóli. Þessi leið verður keyrð frá kl. 14:30 til 17:00 á hverjum degi og er gert ráð fyrir einni ferð fram og til baka á hverjum 30 mín. Bíllinn fer frá Mýrinni á heila og hálfa tímanum en á korterinu frá íþróttahúsinu Sjálandi.

Skráning á Mínum Garðabæ
Kostnaður hvers þátttakanda er kr. 7.500 fyrir önnina, óháð því hve mikið bíllinn er nýttur á tímabilinu. Það er því hagkvæmast að vera með frá byrjun. Skráning barna í frístundabílinn fer fram á „Mínum Garðabæ“. Aðgangskort verða gefin út og þau síðan afhent á skrifstofum skólanna. Listi yfir börn sem eru áskrifendur að bílnum mun liggja frammi á tómstundaheimilunum svo starfsmenn geti aðstoðað börnin við að vera tilbúin á réttum tíma. Það er á ábyrgð barnanna sjálfra að skila sér í frístundabílinn og að hafa aðgangskortin með sér til að sýna í bílnum.

Fyrsta vikan er gjaldfrjáls og þá geta öll börn nýtt sér frístundabílinn.

Fréttin er tekin af vef Garðabæjar

Til baka
English
Hafðu samband