Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þorrablót 6. bekkinga

10.02.2011
Þorrablót 6. bekkinga

Árlegt þorrablót 6. bekkinga var haldið í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 9. febrúar. Nemendur buðu foreldrum sínum til glæsilegrar veislu þar sem gleði og ánægja skein úr hverju andliti. Þar buðu nemendur upp á frábær skemmtiatriði, undir stjórn umsjónarkennara. Þá var boðið upp á þorramat sem Áslaug heimilisfræðikennari og nemendur höfðu undirbúið. Að lokum dönsuðu allir nemendur og foreldrar af mikilli gleði.

Sjá myndir á myndasíðu 6. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband