Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinningshafi í teiknimyndasamkeppni

26.04.2011
Vinningshafi í teiknimyndasamkeppniÁ haustdögum tóku nemendur í 4. bekk, sem voru í myndmennt, þátt í teiknimyndasamkeppni í tilefni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins undir slagorðinu „Mjólk er góð“
Til mikillar ánægju var ein af okkar myndum valin úr hópi 1300 teikninga sem bárust frá 60 skólum alls staðar að af landinu. Tíu nemendur voru valdir og hlutu þeir verðlaun, 25 þúsund krónur hver, en upphæðin rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi. Okkar vinningshafi er Hildur Björg Jónsdóttir nemandi í 4-US. Gaman verður að fylgjast með hvað vinningshafinn leggur til að gert verði við peningana. Til hamingju Hildur Björg og góða skemmtun.

Til baka
English
Hafðu samband