Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Reiðhjólahjálmur að gjöf

04.05.2011
Reiðhjólahjálmur að gjöf

Í síðustu viku komu nokkrir félagar úr Kiwanisklúbbnum Setbergi í Garðabæ í skólann og færðu öllum nemendum í 1. bekk reiðhjólahjálm að gjöf.
Um er að ræða árlegt verkefni Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en verkefnið í ár hefur hlotið nafnið „Óskabörn þjóðarinnar“. Við þökkum kærlega fyrir þessa flottu gjöf sem mun koma að góðum notum.

Skoða myndir á myndasíðu 1. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband