Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leiðsagnarmat í tengslum við nemenda og foreldrasamtöl

29.09.2011
Leiðsagnarmat í tengslum við nemenda og foreldrasamtöl

Nemenda og foreldrasamtöl verða í skólanum þriðjudaginn 11. október. Opnað verður fyrir leiðsagnarmatið í Mentor fimmtudaginn 29. september og eru nemendur, með aðstoð foreldra sinna, hvattir til að ljúka því við fyrsta tækifæri. Gert er ráð fyrir að allir hafi lokið matinu miðvikudaginn 5. október. Leiðsagnarmatið byggir á þátttöku nemenda og er mikilvægt að þeir taki virkan þátt í matinu og njóti aðstoðar foreldra eða forráðamanna. Allir hafa fengið sendar leiðbeiningar frá skólanum.

Ef einhverjir eru í vandræðum eru þeir hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara eða kennsluráðgjafa Elísabetu Benónýsdóttur til að fá aðstoð eða frekari leiðbeiningar.
Leiðsagnarmatið er eining í Mentor sem gefur aukna möguleika á samstarfi nemenda, foreldra og skóla við markmiðssetningu og mat á stöðu og líðan nemenda. Markmiðið með leiðsagnarmatinu er m.a. markviss og gagnkvæm upplýsingagjöf. Þannig safna kennarar meiri upplýsingum um nemendur og fá að auki upplýsingar frá nemendum sjálfum um hvaða augum þeir líta eigin stöðu í skólanum. Leiðsagnarmatið gefur einnig tilefni til umræðna á heimilinu um gang mála í skólanum.

Skoða leiðbeiningar

Til baka
English
Hafðu samband