Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dagatal foreldrafélagsins og jólakort

18.11.2011
Dagatal foreldrafélagsins og jólakort

Foreldrafélagið hefur gefið út dagatal með leiðarljósi Hofsstaðaskóla á forsíðu. Til að auðvelda skipulag heimilisins er búið að bæta viðburðadagatali skólans fyrir veturinn inn á dagatalið.

Verð á dagatalinu er kr. 1.500.-

Jólakort foreldrafélagsins eru nú til sölu á tilboðsverði. Hilmar Snær Örvarsson, nemandi í 6. bekk, átti hugmyndina að útliti kortsins og hannaði það með aðstoð grafísks hönnuðar.

6 kort í pakka á 800 kr. (Upphaflegt verð  1.000 kr.).

Með því að kaupa dagatöl og/eða jólakort af foreldrafélaginu, leggur þú þitt af mörkum til að efla tækjakost Hofsstaðaskóla. Þannig sköpum við betri aðstæður fyrir börnin okkar í skólanum.

Dagatölin og kortin eru til sölu í móttöku hjá Lindu á skrifstofu skólans.

Leiðarljós Hofsstaðaskóla

 

Til baka
English
Hafðu samband