Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vitnisburður og Námsframvinda

27.01.2012
Vitnisburður og Námsframvinda

Fimmtudaginn 26. janúar fengu nemendur afhentan vitnisburð. Við viljum minna á að námsmat í fleiri greinum er að finna í Námsframvindunni í Mentor. Þar er birt námsmat í flestum greinum sem kenndar eru í list- og verkgreinalotu þ.e. smíði, myndmennt, textílmennt og heimilisfræði. Auk þess er námsmat í sundi, tölvum, eðlisvísindum í 1.-5. bekk, vélritun í 3. – 7. bekk og fyrir ritunarnámskeið í 5.og 7. bekk. Áðurnefndar greinar eru því ekki á vitnisburðarblaði. Nemendur í 1. bekk fá að auki umsögn í Námsframvindu í lestri og stærðfræði.

Námsframvindan veitir nemendum og foreldrum góða yfirsýn í hverri námsgrein fyrir sig. Með því að gera námsmarkmiðin sýnileg viljum við auka ábyrgð nemandans og hvetja hann áfram í náminu.
Við hvetjum nemendur og foreldra til að fara inn í Mentor, áður en komið er í nemenda- og foreldrasamtal til kennara og skoða Námsframvinduna, markmiðin og mat kennarans á frammistöðu nemandans í þeim greinum sem nemandi hefur lokið á haustönn.
Nemenda- og foreldrasamtalsdagur er miðvikudaginn 1. febrúar en þann dag mæta nemendur ásamt foreldrum í samtal við umsjónarkennara. Minnum á að aðrir kennarar skólans eru einnig til viðtals þennan dag. Sjá nánar í fundarboði.

Hvernig skoða ég námsmarkmiðin í Námsframvindunni og mat kennarans?
1. Foreldri/nemandi skráir sig inn á www.mentor.is
2. Smellt er á + fyrir framan Námsframvinda (vinstra megin á skjánum) og opnast þá listi yfir þætti Námsframvindunnar
3. Þátturinn sem við ætlum að skoða heitir námsmarkmið
4. Smellt á námsmarkmið

Þá opnast síða þar sem efst er valið nafnið á nemanda sem á að skoða (ef foreldrar eiga fleiri en eitt barn í leik- og/eða grunnskóla), næst er hægt að velja námsstig (þrep) og Fag. Mentor skilar nemandanum sjálfkrafa á aldurssvarandi þrep t.d. þrep 1 og 2 vísar til þess að nemandinn er í 1. bekk (þrep 1 haust og þrep 2 vor) meðan þrep 3 og 4 vísar til þess að nemandinn er í 2. bekk (þrep 3 haust og þrep 4 vor).
Athugið að námsstigið (þrepið sem velja á til að skoða Námsframvindu haustannar er fyrra þrep árgangs (t.d. þrep 1 hjá nemanda í 1. bekk en þrep 3 hjá nemanda í 2. bekk o.s.frv).



Að vista og/eða prenta út matsblöðin
1. Velja Námsframvinda og námsmarkmið
2. Hægra megin á skjánum er valið útprentanir
3. Þar er t.d. hægt að velja Allir áfangar og Öll þrep og Heildaryfirlit B.
4. Þá koma upp öll matsblöðin fyrir þær greinar sem búið er að gefa fyrir og birta í Námsframvindunni.
þetta er pdf-skrá sem hægt er að skoða, prenta og/eða vista á tölvunni.

Til baka
English
Hafðu samband