Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þorrablót 6. bekkinga

20.02.2012
Þorrablót 6. bekkinga

Árlegt þorrablót 6. bekkinga var haldið í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 8. febrúar. Nemendur buðu foreldrum sínum til frábærrar veislu þar sem gleði og ánægja skein úr hverju andliti. Salurinn var glæsilega skreyttur af nemendum með skrauti sem þeir útbjuggu undir stjórn list- og verkgreinakennara. Nemendur buðu upp á fjölbreytt skemmtiatriði sem m.a. samanstóðu af leikriti, hljóðfæraleik, söng, dansi og leiknum bröndurum. Dagskráin var kynnt af myndarskap og sáu nemendur um að stýra tæknimálum meðan á sýningunni stóð. Síðast en ekki síst má minnast á flutning á minni karla og kvenna sem er fastur liður á þorrablóti sem vekur alltaf mikla lukku.
Að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á þorramat sem heimilisfræðikennarinn og nemendur höfðu undirbúið. Í lokinn dönsuðu foreldrar og nemendur af mikilli gleði undir stjórn íþróttakennara, en nemendur hafa fengið kennslu í dansi í íþróttatímum undanfarnar vikur.

En látum myndirnar tala.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband