Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólamjólkurdagurinn

26.09.2012
SkólamjólkurdagurinnÞann 26. september var alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur. Í tilefni dagsins bauð Mjólkursamsalan öllum grunnskólabörnum landsins upp á mjólk. Nemendur Hofsstaðaskóla tóku að sjálfsögðu þátt í deginum og drukku marga lítra af mjólk. Samtímis því að skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur er árlegri teiknisamkeppni hleypt af stokkunum. Öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í samkeppninni. Myndefnið er algjörlega frjálst en æskilegt er að myndefnið tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk. 

Skoða myndir
Til baka
English
Hafðu samband