Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinstri, hægri, vinstri

05.11.2012
Vinstri, hægri, vinstri

Nemendur í 1. og 2. bekk skemmtu sér vel þegar þeir horfðu á umferðarleikritið Vinstri, hægri, vinstri sem var sýnt í síðustu viku. Það fjallaði um strák og tröllastelpu sem hafði þurft að fara til byggða. Þau lentu í ýmsum ævintýrum í umferðinni og þá var mikilvægt að kunna umferðarreglurnar. Að lokum fengu nemendur endurskinsmerki sem gott er að nota í skammdeginu.

Skoða myndir

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband