Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heimsókn slökkviliðs og sjúkraflutningamanna

26.11.2012
Heimsókn slökkviliðs og sjúkraflutningamanna

Í tilefni af eldvarnarviku heimsóttu nokkrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn nemendur í 3. bekk. Þeir fræddu þá um eldvarnir og hvöttu til varkárni í umgengni við eld. Í lok heimsóknar var farið út á skólalóð til að skoða sjúkra- og slökkviliðsbíl.

Nemendur fengu myndskreytta sögu um slökkviálfana Loga og Glóð. Einnig eru nemendur hvattir til að svara eldvarnargetraun og fá viðurkenningu frá slökkviliðsmönnunum fyrir það.

Skoða myndir á myndasíðu 3. bekkja

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband