Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningafundir foreldra nýnema

18.03.2013
Kynningafundir foreldra nýnema

Þriðjudaginn 14. mars var opið hús í skólanum fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk næsta haust. Byrjað var á kynningu á starfi skólans í salnum en um kynninguna sáu nemendur í 4. 5. og 6. bekk. Þeir sögðu frá skólanum sínum og sýndu myndir. Að kynningu lokinni gafst gestum tækifæri til að beina spurningum bæði til nemenda og starfsfólks skólans. Að því loknu var þeim sem vildu boðið í kynnisferð um skólann og tómstundaheimilið Regnbogann.
Mæting var góð á kynninguna en um 60 foreldrar mættu til leiks ásamt 20 börnum. Við erum mjög stolt af nemendum okkar sem stóðu sig frábærlega.

Nemendurnir sem sáu um kynninguna að þessu sinni voru þau:
Helga Margrét Ólafsdóttir 4. ÁK, Helena Ýr Marinósdóttir 5. AMH, Védís Rún Ólafsdóttir 5. HS, Birgir Guðlaugsson 6. ÓP, Steinn Ingi Einarsson 6. ÓP, Laufey Sara Malmquist 6. HBS, Þorbjörn Bragi Jónsson 6. HBS og Liv Benediktsdóttir 6. GP

Þess má geta að þeir sem ekki sáu sér fært að koma á kynninguna en hafa áhuga á að koma í heimsókn á skólatíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynnisferð eftir samkomulagi s. 565-7033, eða sent tölvupóst á netfangið hskoli@hofsstadaskoli.is.

Sjá fleiri myndir af kynningarfundi

Til baka
English
Hafðu samband