Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir Hofsstaðaskóla

30.05.2013
Mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir Hofsstaðaskóla

Illugi Gunnarsson mennta- og menningamálaráðherra heimsótti Hofsstaðaskóla 29. maí sl. á fjórða starfsdegi sínum. Með honum í för voru fjórir starfsmenn ráðuneytisins.
Ástæða heimsóknarinnar var gott gengi Hofsstaðaskóla í Nýsköpunarkeppni grunnskóla undanfarin ár, en skólinn fékk gullverðlaun í fimmta sinn fyrir fjölda innsendra hugmynda í keppnina og margir nemendur skólans fengu verðlaun fyrir hugmyndir sínar.
Ráðherra hitti m.a. Sædísi Arndal smíða- og nýsköpunarkennara sem á fyrst og fremst heiðurinn að velgengni skólans í keppninni. Sædís útskýrði fyrir ráðherra hvernig staðið væri að kennslu í nýsköpun í skólanum. Hún lagði áherslu á að nemendur fengju hugmynd sem þeir þyrftu að útfæra m.t.t. hversu mikil þörf væri fyrir hana, hvort hún leysti ákveðin vandamál og hvernig best væri að koma hugmyndinni og vörunni í framleiðslu og á markað. Sædís sagði ráðherra frá því að á hverju ári veitti Marel nýsköpunarverðlaun.
Ráðherra kom við í 5. bekk þar sem nemendur voru að vinna verkefni í náttúrufræði. Nemendum í árganginum var skipt í hópa þvert á árganginn. Verkefnið var spurningakeppni tveggja liða og var unnið á gagnvirka kennslutöflu. Mikil gleði og keppnisandi ríkti í hópnum. Það er gaman að segja frá því að grunnþættir menntunar voru mjög sýnilegir í skólastofunni, s.s. jafnrétti, læsi og lýðræði og mannréttindi. Ráðherra, sem ekki hafði áður séð gagnvirka kennslutöflu í notkun var mjög hrifinn og talaði um hraðar tækniframfarir í kennslu og námi barna í grunnskóla.
Ráðherra gekk um skólann, skoðaði lampa sem nemendur í 6. bekk gera í smíði, en þeir taka áralega þátt í lampasamkeppni. Kennari í hönnundardeild Iðnskólans í Hafnarfirði velur lampa, sem að hans mati skara fram úr og sigurvegarar fá vegleg verðlaun frá Marel.
Þrír nemendur fylgdu ráðherra um skólann tóku myndir og myndskeið á iPad og myndavél, auk þess sem þeir tóku viðtal við hann.

Sjá myndir frá heimsókninni á myndasíðu skólans

Á vefsíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins birtist frétt um heimsókn ráðherrans í skólann

Á forsíðunni undir Fréttir frá nemendum má sjá stutt myndband sem Magnús, Signý og Natalía í 6. bekk tóku saman um heimsóknina. Myndbandið er einnig hægt að nálgast hér 


Til baka
English
Hafðu samband