Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dagur í lífi mínu - En dag i mit liv

12.06.2013
Dagur í lífi mínu - En dag i mit liv

Nemendur Hofsstaðaskóla byrja að læra dönsku í 7. bekk. Aðalmarkmið kennslunnar er að gera nemendur jákvæða gagnvart dönskunámi sínu því þá verður allt svo miklu léttara og skemmtilegra fyrir bæði nemendur og kennara. Kennslan er reglulega brotin upp með söngvum, spilum, bíómyndum, leikjum og hópverkefnum ýmis konar. 

Sem dæmi um hópverkefni má nefna verkefnið En dag i mit liv. Þar sameinast sköpun, framsögn, orðaforði, gleði og upplýsingatækni svo eitthvað sé nefnt. Nemendum er skipt í 2-4 manna hópa og fá þeir það verkefni að lýsa einum dæmigerðum degi í lífi sínu. Nemendur útbúa handrit með orðaforða vetrarins til hliðsjónar og fá svo frjálsar hendur með hvernig þeir vilja setja verkefnin fram. Vorið 2013 notuðu nær allir nemendur I-pada skólans og útbjuggu myndbönd í I-movie. Nemendur gengu um skólann og tóku upp myndbönd af skólaumhverfi sínu, starfsfólki, skólastofum, samnemendum og öðru því sem þeim datt í hug. Útkoman var mjög lifandi og skemmtileg. Krakkarnir töluðu á dönsku inn á myndböndin og danskur texti þurfti jafnframt að fylgja með. Í lokin var haldin bekkjarsýning á verkunum þar sem hver og einn hópur sýndi og kynnti sitt verkefni fyrir hinum.

Í ár komu danskir nemendur í heimsókn í skólann og fengu þeir að horfa á nokkur vel valin myndbönd með okkur. Þeir voru mjög hrifnir enda var mjög skemmtilegt að sjá hvað krakkarnir lögðu sig vel fram, voru hugmyndaríkir og vandvirkir.
Hægt er að skoða nokkrar myndir úr dönskukennslunni inn á myndasíðu 7. bekkja og nokkur myndbönd eru aðgengileg af vefnum.
 

Til baka
English
Hafðu samband