Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Norræna skólahlaupið

06.09.2013
Norræna skólahlaupið

Ánægðir nemendur og starfsmenn Hofsstaðaskóla tóku þátt í Norræna skólahlaupinu miðvikudaginn 4. september í góðu veðri, sól og blíðu. Þátttakendur gátu valið um að hlaupa eða ganga, en 93% nemenda fóru a.m.k. einn hring eða 2,5 kílómetra og þeir sem vildu fóru allt upp í 5 hringi eða 12,5 km. Samtals fóru nemendur og starfsmenn skólans um 1670 km í hlaupinu. 5. GP fór flesta km eða 157 sem er að meðaltali 6,56 km á hvern nemanda í bekknum. Meðal vegalengd hvers einstaklings í skólanum var 3,82 km (sjá súlurit). Aldeilis frábær árangur.
Með Norræna skólahlaupinu taka nemendur þátt í hollri útiveru og leitast er við að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Sjá fleiri myndir á myndasíðu skólans

 

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband