Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Töframaðurinn Einar Mikael

24.10.2013
Töframaðurinn Einar Mikael

Hinn óviðjafnalegi töframaður Einar Mikael heimsótti Hofsstaðaskóla í morgun og hélt töfrasýningu fyrir nemendur í yngri deild skólans. Einar Mikael heillaði bæði börn og fullorðna sem fylgdust áhugasamir með ótrúlegum sjónhverfingunum.

Nokkrir nemendur voru svo heppnir að fá tækifæri til að stíga upp á sviðið og aðstoða töframanninn en mikill spenningur greip um sig þegar Einar Mikael óskaði eftir aðstoðarmönnum. 

Kíkið á myndirnar á myndasíðu skólans þær lýsa best stemningunni og upplifun barnanna.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband