Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsadagurinn

31.10.2013
Bangsadagurinn

Bangsadagurinn var haldin hátíðlegur á bókasafni skólans föstudaginn 25. október en alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október.

Síðan 1998 hafa bókasöfn á Norðurlöndum haldið Bangsadaginn hátíðlegan. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Dagurinn sem bangsavinir hafa valið sér er 27. október, afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Roosevelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli.

Nemendur í 1. - 4. bekk komu með bangsa í skólann í tilefni dagsins og nemendur í 1. bekk heimsóttu bókasafnið þar sem þeim var kynnt saga dagsins og eldri nemendur lásu fyrir þá bangsasögu.

Skoða fleiri myndir frá bangsadeginum á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband