Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Rithöfundar í heimsókn

06.12.2013
Rithöfundar í heimsóknRithöfundarnir Birgitta Elín Hassel og Hilmar Örn Óskarsson komu í heimsókn á bókasafn Hofsstaðaskóla og lásu upp úr nýútgefnum bókum sínum fyrir nemendur í 4.-7. bekk.
Birgitta las upp úr bók sinni Gjöfin fyrir nemendur í 6.-7. bekk. Gjöfin er úr hinni vinsælu bókaröð Rökkurhæðir.
Hilmar Örn las upp úr bók sinni Kamilla Vindmylla og leiðin úr Esjunni fyrir nemendur í 4.-5. bekk.
Nemendur hlustuðu með athygli á upplestrana enda mikil spenna og hröð atburðarás í gangi en það höfðar einmitt vel til flestra barna á þessum aldri. Að loknum lestri fengu nemendur að spyrja rithöfundana spjörunum úr um hugmyndina að baki bókunum.

Skoða myndir

Til baka
English
Hafðu samband