Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1. bekkur heimsækir vinaleikskóla á aðventunni

13.12.2013
1. bekkur heimsækir vinaleikskóla á aðventunniHofsstaðaskóli á þrjá vinaleikskóla, Hæðarból, Akra og Lundaból. Nemendur sem voru á þessum leikskólum heimsóttu sína leikskóla og einnig nemendur sem voru á öðrum leikskólum. Það má með sanni segja að það hafi verið mikið um fagnaðarfundi og margir nemendur gerðu sig heimakomna þegar þeir mættu í heimsóknirnar. Verkefnin voru fjölbreytt t.d. fengu nemendur að taka þátt í samsöng, vali, hreyfistund og jólaföndri. Í janúar og febrúar koma leikskólanemendur í heimsókn til okkar til að skoða tómstundarheimilið Regnbogann og borða hádegismat.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband