Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heimsókn í 365 miðla

21.03.2014
Heimsókn í 365 miðla

Þriðjudaginn 18. mars skelltu nemendur í 7. ÓP sér í heimsókn í 365 miðla. Þar kynntu þeir sér starfsemi fjölmiðlaveldisins og fengu fræðslu um fyrirtækið og sögu fjölmiðla á Íslandi. Nemendur fengu svo að kíkja í hljóðver Bylgjunnar, Létt Bylgjunnar og FM 957 og ræddu þar við starfsmenn. Þeir fengu svo líka að spreyta sig sem veðurfréttamenn í veðurfréttasettinu og sem fréttamenn í fréttasettinu. Nemendur skemmtu sér konunglega og voru margs fróðari um starfsemi fjölmiðla að heimsókninni lokinni.

Hér má nálgast skemmtilega forsíðu á Fréttablaðinu með mynd af 7. ÓP (pdf)

Til baka
English
Hafðu samband