Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opið hús fyrir nýnema

24.03.2014
Opið hús fyrir nýnemaFimmtudaginn 20. mars var opið hús í skólanum fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2014. Byrjað var á stuttri kynningu á starfi skólans í salnum en um kynninguna sáu nemendur í 6. bekk. Þeir sögðu frá skólanum sínum og sýndu myndir. Að kynningu lokinni gafst gestum tækifæri til að beina spurningum bæði til nemenda og starfsfólks skólans. Að kynningu lokinni var gengið um skólann og tómstundaheimilið. Góð mæting var á kynninguna.

Við erum mjög stolt af nemendum okkar sem stóðu sig frábærlega. Þeir sem sáu um kynninguna að þessu sinni voru: Ágústa, Jóhanna Birta, Katrín, Ólafur Áki, Sigrún Tinna, Rakel Sif, Arnór Logi og Ögmundur, öll nemendur í 6. bekk.

Þess má geta að þeir sem ekki sáu sér fært að koma á kynninguna en hafa áhuga á að koma í heimsókn á skólatíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynnisferð eftir samkomulagi s. 565-7033, eða sent tölvupóst á netfangið hskoli@hofsstadaskoli.is.
Til baka
English
Hafðu samband