Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vímuvarnarhlaup

14.05.2014
Vímuvarnarhlaup

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og myndskeiði var mikil stemning í hinu árlega Vímuvarnarhlaupi sem fram fór þriðjudaginn 13. maí. Það er Lionsklúbburinn Eik sem stendur fyrir hlaupinu í 5. bekkjum grunnskóla Garðabæjar. Tilgangurinn er að vekja börnin til umhugsunar, gera þau meðvituð um ábyrgð á eigin lífi, velferð og hamingju.Harpa Þorsteinsdóttir, íþróttamaður Garðabæjar 2013 mætti á vegum Lionsklúbbsins Eikar og talaði við nemendur um heilbrigt líferni áður en hlaupið hófst.

Hvatningaborðar og söngvar settu mikinn svip á Vímuvarnarhlaupið en allir nemendur skólans mættu og hvöttu keppendur óspart. Þrjár stúlkur og þrír drengir voru í liðum 5. bekkja auk varamanna en lið 5. EBG vann keppnina að þessu sinni og fengu vinningahafar verðlaunapening og bekkurinn bikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess fengu allir keppendur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.

Fleiri myndir eru á myndasíðu skólans og myndskeið af stemningunni hjá þeim sem hvöttu hlauparana áfram

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband