Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gunnar Einarsson bæjarstjóri færir afrekskonum blóm

22.05.2014
Gunnar Einarsson bæjarstjóri færir afrekskonum blóm

Gunnar Einarsson bæjarstjóri heimsótti Hofsstaðaskóla í dag og afhenti tveimur starfsmönnum hans blómvendi fyrir frækileg afrek. 

Sædís S. Arndal var nýlega valin nýsköpunarkennari grunnskólanna 2014 en hún hefur kennt nýsköpun í Hofsstaðskóla sl. 10 ár. Árið 2011 vann Hofsstaðaskóli farandbikar til eignar eftir að hafa þrjú ár í röð átt hlutfallslega flestar innsendar umsóknir í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna miðað við nemendafjölda. Nú í ár hlýtur skólinn bikar til eignar öðru sinni en í ár sendu nemendur í 5.-7. bekk inn tæplega 800 umsóknir sem gerir nærri 4 umsóknir á hvern nemanda að meðaltali.

Landsliðskonan Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, kennari í Hofsstaðaskóla lauk nú í vor löngum og farsælum handknattleiksferli sínum með því að landa Íslandsmeistaratitlinum með Val. Valur bar sigurorð af Stjörnunni í Garðabæ þann 17. maí sl. Hrafnhildur hefur hampað Íslandsmeistaratitli alls fjórum sinnum á ferlinum, orðið bikarmeistari þrisvar sinnum, spilað á heimsmeistaramóti, leikið sem atvinnumaður í Danmörku og verið fyrirliði íslenska landsliðsins svo eitthvað sé talið.

Sjá fleiri myndir frá heimsókninni á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband