Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kórinn sýnir Grease

06.06.2014
Kórinn sýnir Grease

Yndislegir kórnemendur í Hofsstaðaskóla sýndu þrjár GREASE-sýningar í sal skólans þriðjudaginn 3. júní. Yngstu nemendum skólans var boðið á fyrstu sýningu dagsins og kennurum þeirra, önnur sýningin var svo fyrir eldri nemendur og kennara þeirra og svo toppaði kórinn daginn á því að bjóða foreldra sína, systkini, ömmur, afa, frænkur og frændur á kvöldsýningu. 

Það er nokkuð ljóst að yfir 500 manns sá sýninguna þar sem að í hvert sinn var troðfullur salur af áhorfendum. Í þetta skiptið fæddust margar stjörnur á sviði. Það er yndislegt að fagna sumrinu með vel völdum myndum frá sýningunni. Hjartanlega til hamingju kórfélagar og tæknimenn úr 4., 5., 6. og 7. bekk en hátt í 30 nemendur tóku þátt í sýningunni að þessu sinni.

Á myndasíðu skólans er hægt að skoða fleiri myndir frá sýningunni

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband