Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólamót Garðabæjar í mini tennis 2014

09.06.2014
Skólamót Garðabæjar í mini tennis 2014Fyrsta skólamót Garðabæjar í mini tennis var haldið á vegum Tennisfélags Garðabæjar (TFG) og Tennishallarinnar sunnudaginn 1. júní sl. í Tennishöllinni í Kópavogi.
Þátttaka var mjög góð og voru tennislið frá Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Alþjóðaskólanum og Flataskóla mætt til leiks.
Leikar fóru þannig að lið Hofsstaðaskóla sigraði í skólakeppninni og var þeim afhentur farandbikar frá Tennisfélagi Garðabæjar.
Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir besta einstaklingsárangur. Þau hlutu Tómas Andri Ólafsson úr Flataskóla fyrir fyrsta sætið, Sebastian Fryberger úr Sjálandsskóla fyrir annað sætið og Jakob Máni Magnússon úr Hofsstaðaskóla fyrir þriðja sætið.
Boðið var upp á pylsur í hléi. Hoppukastali og togbraut voru á svæðinu og að endingu var farið í skemmtilega tennisleiki með foreldrum.
Tennisfélag Garðabæjar og Tennishöllin þakka öllum börnunum fyrir þátttöku og góða frammistöðu á skólamótinu og óska sigurvegurunum til hamingju með árangurinn.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband