Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Framkvæmdir vegna viðbyggingar við skólann eru hafnar

14.07.2014
Framkvæmdir vegna viðbyggingar við Hofsstaðaskóla eru hafnar. Framkvæmdasvæðið er alfarið norðan við núverandi skólabyggingu, milli skólans og lækjarins. Umferð verktaka til og frá framkvæmdasvæðinu verður um Krókamýri.

Umferðin verður mismikil eftir framkvæmdastigum. Væntanlega þyngst í júlí/ágúst meðan á jarðvegsframkvæmdum stendur. Þá hefjast framkvæmdir við grundun og uppsteypu hússins sem áætlað er að ljúki í októbermánuði. Eftir það verður aðallega um framkvæmdir innanhúss að ræða, fram á vor 2015, en þá hefst vinna við lokafrágang utanhúss s.s.múrhúðun og málun ásamt frágangi lóðar umhverfis viðbygginguna. Þann 1. ágúst 2016 er áætlað að framkvæmdum verði að fullu lokið. 

Sjá yflitsmynd og afrit af bréfi til íbúa í Mýrum. 

Til baka
English
Hafðu samband