Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ársskýrsla skólans 2013-14

18.07.2014

Ársskýrsla Hofsstaðaskóla árið 2013-2014 er komin út. Markmiðið með útgáfu ársskýrslu grunnskólanna er að gera grein fyrir helstu atriðum í skólastarfinu og því fjölbreytta starfi sem þar fer fram. Auk þess að fjalla um daglegt starf koma fram ýmis atriði sem takast sérstaklega vel, auk ábendinga um sitthvað sem betur mætti fara. Að gerð ársskýrslu koma kennarar, deildarstjórar og fleiri auk aðstoðarskólastjóra sem ritstýrir verkinu. Skýrslan skiptist í fimm kafla auk formála; Hagnýtar upplýsingar, samstarf heimila og skóla, áherslur í skólastarfi, ýmsar skýrslur og skýrslu Tómstundaheimilis. Hana prýða ljósmyndir úr skólastarfinu og gefa þær vonandi innsýn í þau margvíslegu viðfangsefni sem nemendur fást við. 

Til baka
English
Hafðu samband