Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsasögur á bókasafni

26.10.2014
Bangsasögur á bókasafni

Bangsadagurinn var haldinn hátíðlegur í Hofsstaðaskóla þann 24. október. Krakkarnir mættu með bangsana sína í skólann og eldri nemendur tóku að sér að lesa bangsasögur fyrir nemendur í 1. bekk á bókasafni skólans.
Bókasöfn á Norðurlöndum hafa haldið bangsadaginn hátíðlegan síðan árið 1998. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka.

Sjá myndir frá bangsadegi

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband