Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Laufabrauðsgerð 6. desember

02.12.2014
Laufabrauðsgerð 6. desember

Sannkölluð jólastemning verður í sal skólans næstkomandi laugardag 6. desember kl. 11.00-14.00. Þá koma saman börn og fullorðnir, skera út og steikja laufabrauð. Falleg jólalög munu óma og boðið verður upp á piparkökur og kaffi.

Börnin eiga að koma í fylgd með fullorðnum og allir muna eftir að taka með sér skurðarbretti , hnífa og ílát undir steiktu laufabrauðin. Þeir sem eiga ekki laufabrauðsjárn geta notað t.d. fiskihnífa, steikarhnífa, vasahnífa eða grillpinna. Svo lengi sem oddurinn er mjór virkar það vel. Nemendur úr 7. bekk munu aðstoða við laufabrauðsgerð og veitingar.

Drykkir og konfekt verða einnig selt á staðnum.
Sjáumst hress í hátíðarskapi
Foreldrafélagið

Til baka
English
Hafðu samband