Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinabekkir hittast og spila

17.02.2015
Vinabekkir hittast og spila

Fyrir vetrarfrí hittust vinabekkirnir 1.GÞ og 5.ÖM og spiluðu Ólsen – ólsen. Það fór vel á með krökkunum og allir hjálpuðust að og ekki síst voru eldri börnin dugleg að hjálpa þeim sem yngri voru. Allir áttu góða stund saman og gaman að sjá hve yngri börnin nutu þess að fá athygli þeirra eldri enda voru þau afskaplega góð við þau og alveg til fyrirmyndar. Við hlökkum sannarlega til að hittast aftur með þessa góðu bekki.  Myndir frá þessari skemmtilegu samverustund eru komnar í myndasafn 1.GÞ og 5. ÖM

Til baka
English
Hafðu samband